Um ferðina
Þetta er skemmtilega dagsferð þar sem við byrjum á því að fara út á Reykjanes og skoðað alla flottustu staði á Reykjanesinu eins og Gunnuhver, Reykjanestá, Valahnjúkur svo eitthvað sé nefnt eftir það liggur leið okkar til Grindavíkur þar sem við munum fá okkur hádegismat á kaffi húsinu Bryggjunni eftir góðan mat og hvíld er ekkert annað að gera en að halda út á krísuvík þar sem við munum keyra gamla krísuvíkurveginn yfir Festafjall og þaðan á Vigdísarvelli sem er mjög skemmtilega leið það er alveg eins og maður sé kominn upp á hálendið og við munum sjá Kleifarvatn sem er eitt dýfsta vatn á Íslandi, við munum einnig koma við á háhitasvæðinu Seltúni og þar munum við sjá alla fallegu hitalitina í fjöllunum.
——————————————————
Frábær ferð fyrir þá sem vilja eyða heilum degi á fjórhjólum.
Mæla með á Facebook