Umsagnir
  • Fjórhjólaævintýrið er góð skemmtun fyrir alla. Leiðin var mjög spennandi og útsýnið var frábært. Við vorum mjög heppin með veður einnig sem gerði ferðina ógleymanlega. Þetta var góð afþreying og allir skemmtu sér konunglega. Við starfsmenn Nettó Reykjanesbæ mælum með þessari skemmtun. Takk fyrir okkur. Starfsmenn Nettó.
    - Starfsmannaferð Nettó
  • Það skemmtu sér allir konunglega, þetta var alveg frábært hjá ykkur í alla staði og ég mun mæla með þessu við alla sem vilja fara í skemmtilega ferð. Afþreyingin var flott , hjólaferðin passlega löng og leikirnir voru flottir og allir aldurshópar sem gátu tekið þátt Maturinn + staðurinn ( Salthúsið ) Maturinn var frábær ( fengum austurlenskan ) og öll þjónustan á staðnum til fyrirmyndar. Takk kærlega fyrir okkur.
    - Starfsmannafélag Kúts (ÍSAGA)
  • Þetta er frábær leið til að efla andann innan fyrirtækisins, þjappa hópnum saman og svo ýtir þetta einnig undir keppnisskapið (innan skynsamlegra marka þó!). Svakalega gott að komast í sund og pott eftir á og svo vorum við mjög ánægð með matinn og salinn um kvöldið. Tvímælalaust hópeflisferð sem við mælum með! Kær kveðja Hrund
    - PricewaterhouseCoopers
  • Dagurinn sem við áttum með strákunum hjá Fjórhjólaæfintýri var alveg frábær. Virkilega hressir og skemmtilegir karlar sem tóku á móti okkur á skotsvæðinu á Álfsnesi. Flest okkar höfðu aldrei skotið úr rifli áður en með góðri leiðsögn náðum við að hitta meirihlutann af leirdúfunum sem fór í loftið. Fjórhjólaferðin var alveg frábær. Hressir og skemmtilegir strákar tóku á móti okkur í Grindavík og fóru með okkur í ógleymanlega ferð um nágrenni Grindavíkur. Virkilega falleg og passlega löng leið. Mitt fólk í Húsasmiðjunni var virkilega sátt við daginn og alveg ákveðin í að kíkja til þeirra aftur við tækifæri. Takk kærlega fyrir okkur.
    - Auður í Húsasmiðjunni
  • Þessi dagur var í alla staði frábær, skemmtileg leið farin á hjólunum Alveg passlega löng, og ekki skemmdi að við fengum Svakalega gott veður, svo toppaði nú hópeflið alveg daginn, hörðustu löndunnar gæjar misstu sig í hoppi og leikjum, Krakkarnir hjá fjórhjólaævintýri eru í alla staði bara frábær !!!! við mælum sko með þessu fyrir alla, endilega að prófa. Takk kærlega fyrir okkur Starfsmannafélag Þorbjarnar.
    - Þorbjörn fjórhjólaferð + hópefli
  • „Fórum þrjár stúlkur saman í ferðina Lava beach og skemmtum okkur stórkostlega vel þótt veður hefði ekki verið með besta móti. Allur aðbúnaður og þjónusta er til fyrirmyndar hjá fyrirtækinu og fulltryggt að einstaklingum líði vel í ferðinni. Útsýni í ferðinni var gríðarlega fallegt og leiðin sem var farin var mjög skemmtileg, en farið var upp á milli fjalla þar sem útsýni var stórkostlegt vægast sagt, keyrt á ströndinni og meðfram sjónum þar sem stoppað var við áhugaverð svæði. Mælum eindregið með þessari skemmtilegu ferð fyrir alla þá sem vilja smá „adrenalinkick“ :) „ Bkv. Hafdís
    - Hafdís og vinkonur frá Reykjavík Excursions
  • Ég hringdi í strákana hjá fjórhjólaævintýrinu og þeir gátu tekið á móti okkur strax við vorum með tvo krakka 9 ára og 16 og við skemmtun okkur öll mjög vel.
    - Fjölskylduferð Linda

Skrifa umsögn

Endilega sendu okkur þína umsögn ef þú hefur farið í ferð með okkur. info@atv4x4.is